Sniðganga Sjálfstæðisflokksins gegn Múlaþingi?

Það má öllum ljóst vera að þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Njáll Trausti Friðbertsson, ber hag Egilsstaðaflugvallar lítt fyrir brjósti, þó hann sé þingmaður N-Austur kjördæmisins.  Athygliverður er einnig máttlítill þrýstingur oddvita Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi, í flugvallarmálinu.

Berlega hefur komið í ljós að Seyðisfjarðagöng eru ekki eitt af uppáhaldsverkefnum í Fjármálaráðuneytinu, né í flokksmaskínu Sjálfstæðisflokksins heilt yfir.  Nægt fé virðist þó í Borgarlínu, bæði í uppbyggingu og rekstur svo ekki sé minnst á nýjast fjárglæfraævintýrið, Þjóðarhöllina.  Þá ber Bjarni Benediktsson ekki fyrir sig sjóðþurrð í ríkiskassanum.

Öxi er löngu tilbúin í útboð og enn er beðið eftir að verkið hefjist.  Ríkisstjórnin var svo fyrirhyggjusöm að gefa það út, að sá sem vogaði sér að bjóða í verkið, mundi sæta því að reka mannvirkið og bera á því ábyrgð næstu árin.  Mjög svo hvetjandi, - eða hitt þó heldur.

Eru kjósendur Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi sáttir við framgöngu sinna manna?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband