Lífshlaup karlmannsins

Barnaskólaárin eru mörgum fersk í minni
því miklar verða breytingar á líkamsstarfsseminni
mörgum fer þá bráðlega að leiðast lestrarstritið
þá læðist gjarnan inn í kroppinn fyrsta hvolpavitið

Svo í kringum fermingu þá fá menn bassaróminn
og finnast þeir vera tilbúnir að kanna leyndardóminn
En þetta er oftast klúður og klaufalegir fundir
því kynlífið á líka sínar raunarstundir

Frá tvítugu til þrítugs blómstrar lífsins leikur
löngunin er stöðug og andi holdsins veikur
Þú lætur eins og knapi á ljónfjörugum hesti
og langar til að gera það á klukkutíma fresti

Frá þrítugu til fertugs eru gjarnan góðar stundir
geysilegur vilji og margir ástarfundir
Af talsvert meiri nákvæmni þú tilfiningar metur
þú treinir þetta lengur,þú gerir þetta betur

Tímabilið fram að fimmtugsaldri
finnst þér sjálfsagt að beita nýjum galdri
kroppurinn er fullur af fiðringi og vonum
og þú villt sofa hjá miklu yngri konum

Þessi löngun fylgir þér fram á sex-tugsaldur
þér finnst þú vera töffari og svakalega kaldur
Um sextugt fer að hrella þig viðsjáll vöðvaslaki
þú verður oftar þreyttur og tollir illa á baki

Um sjötugsaldur finnst þér aftur fjörið vera að lægja
þú ferð nú yfirleytt að láta gömlu brýnin nægja
það miðar hægt ef vindur stendur beinnt á stefnið
þú stundar þetta bara til að halda þér við efnið

Um áttrætt virðist sjálfsagt að hafa hug á konum
í hjartanu er ylur og löngunin að vonum
þér finnst það skipta miklu hjá meyjunum að vera
en manst þó ekki stundum hvað þú ætlaðir að gera

Eftir þennan tíma er löngun best að leyna
og láta ekki glepjast þó að konan vilji reyna
Í átökonum getur sálin gengið öll úr lagi
þú gætir orðið bráðkvaddur úr elli-reiðarslagi.

 

Höfundur: Hákon Aðalsteinsson

mbl.is Faðir McConaugheys dó í miðjum klíðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband