Enn kvarnast úr stuðningshópi OP3. Þökk sé Miðflokknum.

Það er ljóst að Miðflokknum er smá saman að takast að koma viti fyrir þingheim.

Enginn Þingmaður hefur sýnt fram á ágóða fyrir Ísland, að hafa tekið upp OP1 og OP2.

Enginn Þingmaður getur sýnt fram á ágóða fyrir Ísland, að taka upp OP3 núna.

Grátlegt að sjá þingmenn, slá um sig með orðagjálfur um sérstakt orku- og afhendingaöryggi, ef gengið verði að OP3.

Hvað er það í orku- og afhendingaöryggi, sem ekki er hægt að laga með innlendri lagasetningu?

Vita þessir veslings þingmenn ekki, að á Alþingi eru sett lög?

Hvers vegna hlusta stjórnarliðar ekki á grasrót í sínum flokkum?

Svo er það grátbroslegasta, að prentvillupúkar ríkisstjórnarinnar skulu vera uppvísir af því að senda allir sama gallaða keðjubréfið á feisbúkk, þar sem hver étur upp eftir öðrum staðlausa stafi, til að reyna að pumpa í dekkin á loftlausum stjórnarliðum. https://stundin.is/grein/9117/

Aumara getur það vart orðið.


mbl.is Samþykkir ekki orkupakkann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband