Miðflokkurinn þurrkaði upp stimpilpúða EES/ESB, sem...

...stjórna landinu um þessar mundir.  Til hamingju með árangurinn.

Vonandi verður komin vitræn ríkisstjórn þegar þessi umræða kemst aftur á dagskrá, svo hægt verði endanlega að svæfa allar hugmyndir um að koma auðlindum þjóðarinnar í hendur braskara.


mbl.is Fresta umræðu um orkupakkann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Verum vongóðir Pelli, en vitræn ríkisstjórn er það ekki to much?

Magnús Sigurðsson, 31.5.2019 kl. 17:25

2 Smámynd: Benedikt V. Warén

Fyrst tókst að berja Steingrím til að fresta umræðunni má alveg láta sig dreyma um vitræna ríkisstjórn.  Auðvitað eru það svaka bjartsýnar væntingar, - ég viðurkenni það.

Benedikt V. Warén, 31.5.2019 kl. 18:15

3 Smámynd: Benedikt V. Warén

Verst Magnús, ef þessi frestun endist bara yfir helgina. frown

Benedikt V. Warén, 31.5.2019 kl. 18:57

4 Smámynd: Benedikt V. Warén

Svo er spurningin, hvaða hreðjartak hefur ESB mafían á þessum 54 Alþingismönnum, sem þegja flestir þunnu hljóði?

Hvernig í dauðanum halda þeir sömu að þeir komist upp með að undanskilja sæstreng úr þessari tilskipun?

Hversu bláeygir geta þingmenn verið?

Benedikt V. Warén, 31.5.2019 kl. 19:06

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

"Hvernig í dauðanum halda þeir sömu að þeir komist upp með að undanskilja sæstreng úr þessari tilskipun?" Það er to much að ætlast til að þessir 54 haldi annað. Þetta eru bæði bláeygar dúkkulýsur og b leikarar.

Magnús Sigurðsson, 31.5.2019 kl. 20:13

6 Smámynd: Benedikt V. Warén

Satt segir þú Magnús.

Verst er þó að þeir sem kusu og fengu því framgengt að núverandi stjórnarhræringur settist í ríkisstjórn, munu trúlega kjósa D, VG og B aftur næst.  

Sá hópur ætti að fá í kaupbæti, - löggildingu í heimsku.

Benedikt V. Warén, 31.5.2019 kl. 20:32

7 Smámynd: Benedikt V. Warén

Ekki er hægt að átta sig á Pírötum í neinu máli á Alþingi. Þeir eru eins og gallaðar rakettur. Sumir springa þegar síst skyldi og hjá öðrum verður spítan eftir og enginn veit hvaða stefnu þeir taka.

Viðreisn er eins og ein stór fýlysprengja og Samfylkingin er með blautt púður og það eina sem gerist er að kveikurinn brennur upp.

Benedikt V. Warén, 31.5.2019 kl. 20:42

8 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Það væri landhreinsun ef það væri hægt að losna við þetta lið til Brussel. En úr því að EES samningurinn dugði ekki til, þá er hæpið innganga í ESB breyti neinu hvað það varðar. Svo sennilega sitjum við uppi með stórgallaðar fýlusprengjur af öllu sortum. 

Magnús Sigurðsson, 31.5.2019 kl. 21:03

9 Smámynd: Benedikt V. Warén

Augnblik féll ég fyrir hugmyndinni Magnús, að senda þetta lið úr landi og jafnvel til í að skoða umsókn að ESB, en þá kom fréttin á RÚV um að verið væri að senda illa flokkað sorp til baka........

Benedikt V. Warén, 31.5.2019 kl. 21:37

10 Smámynd: Benedikt V. Warén

Þegja flestir þunnu hljóði

þingmenn eins og ekkert sé

Kvartett sönglar, “kannski gróði”

og kyssir vöndinn ESB.

Benedikt V. Warén, 1.6.2019 kl. 12:10

11 Smámynd: Benedikt V. Warén

Þegja flestir þunnu hljóði

þingmenn eins og ekkert sé

Kvartett sönglar, ´´kannski gróði´´

og kyssir vöndinn ESB

Benedikt V. Warén, 1.6.2019 kl. 12:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband