Hverjir stilltu Framsóknarflokknum upp við vegg?

Í aðdragand linnulausrar og ósanngjarna árása á Sigmund Davíð Gunnlaugsson og brotthvarfs hans úr stóli forsætisráðherra var gerð krafa um stjórnarslit eða a.m.k. nýjar kosningar í haust. Framsóknarflokkurinn varð að beygja sig undir ofríki Sjálfstæðisflokksins

Nú er uppskeran eins og til var sáð.  Glundroði og stjórnarkreppa í augsýn.

Hvernig geta vel hugsand menn, trúað því í fullri alvöru, að vinstra liðið geti sameinast í ríkisstjórn.  Fyrst þurfa þeir að sanna að geta starfað í einum flokki til þess að það sé hægt að ætlast til meiri samstöðu.  VG er klofin í herðar niður um þessar mundir, og tímaspursmál hvenær það verði gengið frá lögskilnaði á þeim bænum.  Ekki lagast ástandið við það.


mbl.is Færri flokka stjórn betri kostur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta átrúnaðargoð þitt sem ekki hefur nennt að mæta í vinnuna í fleiri mánuði, það ætti að gera endurkröfu á laun hans og sparka drullusokknum út.

Palli Gardarsson (IP-tala skráð) 13.12.2016 kl. 21:55

2 Smámynd: Benedikt V. Warén

Það er alltaf hressilegt að fá svona málefnaleg innslög.  Hafðu það gott Palli Garðarsson.

Benedikt V. Warén, 13.12.2016 kl. 22:48

3 Smámynd: Benedikt V. Warén

Palli.

Gleymdi að nefna það, að Sigmundur Davíð er búinn að leggja samfélaginu meira til en þorri þingmanna, með að vera á móti Icesave, fá fé út úr föllnu bönkunum og laga skuldastöðu heimilinna.  Þetta gerði hann með annarri hendi á meðan VinstriGrænir og Samfylkingin stóðu fyrir málþófi alla daga.   

Hvort telur þú skila sér betur inn í ríkissjóð???? 

Víðsýni SDG fer skemmtilega í taugarnar í herbúðum annarra flokka og nokkurra samflokksmanna hans, - Svartstakkana.

Þeim síðastnefndu tókst næstum að drepa Framsóknarflokkinn.  Sérkennileg afmælisgjöf það á 100 ára afmælisári.

Benedikt V. Warén, 14.12.2016 kl. 23:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband