"Er ekki rétt að doka við og sjá hvort þetta reddast ekki?"

Þetta virðist vera móttóið á Alþingi í dagsins önn. 

Alveg dæmaust hversu hægt gengur að koma einhverju í gang.  Ekki vantar hugmyndirnar, en pólitískur þroski virðist ekki vera fyrir hendi.  Fólkið á Alþingi Íslendinga virðast vera í einhverjum sýndarveruleika sem ekki er í neinni tengingu við lífið fyrir utan múrana. 

Hvernig væri að alþingismenn færu úr jakkafötunum, kuðluðu saman bindunum og girtu sig í brók.  Færu að  því loknu að leysa hnúta í stað þess að hnýta fleiri.

Ef ekki, - þá senda alþingismenn heim og láta hlutina þroskast í friði fyrir þeim.  Ástandið getur varla vesnað úr þessu.
mbl.is Rótgrónum þankagangi þarf að breyta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband