Enn kvarnast úr stuðningshópi OP3. Þökk sé Miðflokknum.

Það er ljóst að Miðflokknum er smá saman að takast að koma viti fyrir þingheim.

Enginn Þingmaður hefur sýnt fram á ágóða fyrir Ísland, að hafa tekið upp OP1 og OP2.

Enginn Þingmaður getur sýnt fram á ágóða fyrir Ísland, að taka upp OP3 núna.

Grátlegt að sjá þingmenn, slá um sig með orðagjálfur um sérstakt orku- og afhendingaöryggi, ef gengið verði að OP3.

Hvað er það í orku- og afhendingaöryggi, sem ekki er hægt að laga með innlendri lagasetningu?

Vita þessir veslings þingmenn ekki, að á Alþingi eru sett lög?

Hvers vegna hlusta stjórnarliðar ekki á grasrót í sínum flokkum?

Svo er það grátbroslegasta, að prentvillupúkar ríkisstjórnarinnar skulu vera uppvísir af því að senda allir sama gallaða keðjubréfið á feisbúkk, þar sem hver étur upp eftir öðrum staðlausa stafi, til að reyna að pumpa í dekkin á loftlausum stjórnarliðum. https://stundin.is/grein/9117/

Aumara getur það vart orðið.


mbl.is Samþykkir ekki orkupakkann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki kominn tími á gapastokk...

...sem staðsettur verði í komusal Leifsstöðvar, þar sem viðkomandi brotamaður verði látinn dúsa ásamt því að tíundaður verði glæpur viðkomandi, - öðrum ökumönnum til viðvörunar.

Lengd tímans fer eftir eðli brota og aukatíma fá þeir sem ekki kunna að skammast sín og það án þess að fá að fara á salernið.

 


mbl.is Greiddi 450 þúsund krónur í sekt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hvers að samþykkja OP3?

1. Hvað græða Íslendingar á OP3?

2. Hvað er það í OP3 sem ekki er hægt að laga með innlendri lagasetningu?

3. Hvaða gróði var fyrir landsmenn að taka upp OP1 og OP2?

4. Hvað veldur því, að slík ofuráhersla er lögð á að þrykkja OP3 í gegn núna?

5. Hvers vegna hlusta stjórnarliðar ekki á grasrót í sínum flokkum?

6. Eru stjórnarliðar í einhverju baktjaldamakki við ESB?

7. Hvaða örvænting hefur gripið stjórnarliða, að nota valda einstaklinga að birta orðrétt hver eftir öðrum, sömu klisjuna?

 


mbl.is Fylgi flokka nánast óbreytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki orðið tímabært að þingmenn VG létu af því að drulla.....

....yfir bakland sitt og færi að vinna í samræmi við samþykktir flokksmanna.

 


mbl.is „Varla gengið út í hið óendanlega“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband