Bloggfærslur mánaðarins, júní 2011

Ekkert heyrðist á Egilsstöðum...

....í nokkrar skukkustundir, hvorki á rás1 né rás2 á FM. Þetta mun hafa verið mun víðáttumeira en mbl.is greinir frá.
mbl.is Bilun í útsendingabúnaði Rúv
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrring.

Sirkusinn er kominn í bæinn enn eina ferðina.  Sjónhverfingarnar eru endalausar.  Allt kerfið hrunið.  Peningarnir horfnir.  Fyrirtæki falla hvert af öðru.  Heimilin mörg hver eins og rjúkandi ruslahaugar.  En samt er hægt að standa við samning um 100.000.000.00 séreignalífeyrissparnað til handa eins þeirra sem vafi leikur á að hafi hreint mjöl í pokahorninu, svo ekki sé dýpra í árina tekið.

Fjöldi einstaklinga fá engar lausnir, þrátt fyrir að hafa í einu og öllu farið eftir leikreglum fjármálasirkussins.

Svo ruslast Hæstiréttur inn á völlinn með atriði, sem ekki er hægt annað en að gapa yfir.  Ekki það að það komi beinlínis á óvart, en ennþá gengur Hæstiréttur fram af manni. 

Er hægt að skrumskæla réttlætið meira en gert er í græna húsinu aftan við Ingólf?
mbl.is Máli gegn Halldóri vísað frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heildaruppstokkun skattkerfisins!

Innbyggt er í núverandi skattkerfi landsbyggðarfjandsamleg stefna.  Þetta hefur viðgengist í mörg ár og eru þar allir stjórnmálaflokkar jafn sekir.  Virðisaukaskatturinn er þar alverstur vegna þess að hann leggst á síðasta stigið í skattkerfinu.

Sem dæmi get ég nefnt  þegar ég um daginn var að lesa orkureikninga mína og rak þá upp stór augu.  Það var skattur á orkunni hjá Orkusölunni og annar reikningur frá RARIK með skatti á flutningi.  Það sem stakk hins vegar í augun var virðisaukaskattur á skattinum.  Segi og skrifa það var virðisaukaskattur á skattinum. 

Virðisaukaskattur er lagður á þann virðisauka sem til verður við umsýslu á vöru og álagningu söluaðila.  Seint verður hægt að rökstyðja það að skattur geti aukið verðmæti vörunnar þannig að réttlætanlegt sé að leggja á skattinn virðisaukaskatt.

Þessi aðferð er dæmi um aukaskattbyrgði þeirra sem enn vilja halda tryggð við heimahagana, byggja sér ból, eiga heima þar sem þeim líður vel. 

Þessu verður að breyta þannig, að fjármunirnir stoppi á þeim stöðum sem þeirra er aflað og þá kemst á jafnvægi í byggðum landsins.  Byggðastofnun  og Jöfnunarsjóður verða í framhaldi óþarfar stofnanir og aðrar sértækar björgunaraðgerðir óþarfar.  Þessar stofnanir og björgunaraðgerðir stjórnvalda, eru og verða ávallt mislukkaðar aðgerðir, eins og ótal dæmi sanna.

Til þess að þetta getur orðið, verður að bylta skattkerfinu og gjörbreyta.  Öll skattinnheimta verði í höndum bæjar- og sveitarfélaga, sem síðan  greiða í einn sjóð skv. höfðatölu, öll sömu krónutölu á hvern einstakling. 

Sá sjóður er ríkissjóðurinn og sér hann m.a. um að reka Alþingi með 15 alþingismönnum, sem sjá um lagasetningu.  Þeirra verkefni verður að setja lög og fylgjast með að þeim lögum sé framfylgt.  Ekkert annað.  Allri hagsmunagæslu verði stungið undir stól og hagsmuna- og kjördæmapot verði ekki liðið.  Ríkisstjórnin sér um að allt fari fram með ró og spekt.  Þing og þjóð vinni saman eins og smurð vél.   Ágreinigsmálum sveitarstjórna verði vísað til hennar og hún látin úrskurða, sé dómstólaleiðin ekki fær.

KERFIÐ, eins og það er, hefur ekki virkað í mörg ár.  Það þarf að koma framkvæmdavaldinu til fólksins, en ekki láta það í hendur fárra eins og nú er.  Óbreytt ástand er bara  ávísun á áframhaldandi spillingu.  Spillingu, sem hefur verið landlæg hér í áraraðir og afleiðingarnar æpa á mann hvert sem litið er.
mbl.is Vilja breyta skattkerfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðlegra getur það vart orðið....

....að minnast árstíðar Jóns forseta með ítlalskri matarmenningu, - eða hvað? 

Heppilegra hefði verið ekta "smörrebröd og frikadeller" sem Jón heitinn hefur sennilega sporðrennt, frekar en pizzum.

Sá gamli hefur allavega blásið á þetta framtak.  Whistling
mbl.is Strekkingurinn felldi pizzutjaldið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ömulegur tviskinnungur í VG.

Ekki dettur mér augnablik í hug að verja það að hingað komi erlendir erindrekar til að leggja snörur fyrir ungmenni til hernaðarstarfa.  En er hægt að banna stofnunum að kynna starfsemi sína?  Hvað segja menn ef fjölpóstur frá þeim sömu berast til þessara ungmenna.  Er líka bannað að senda fjölpóst?

Hins vegar get ég ekki orða bundist, að verða ítrekað minntur á það að hernaðarbrölt virðis síður en svo vera VG á móti skapi.  Nú í síðustu viku voru hér herdeildir sem lögðu landið, miðin og lofthelgi undir sig til æfinga.  VG var í ríkisstjórn síðast þegar ég vissi og ekki er nema mánuður síðan VG ályktuðu um að segja segja upp samningum við NATO.  Á sama tíma er með þögninni samþykkt að fara með hervaldi til höfuðs Gaddafi.

Ég er ekki að ná því að fylgja stefnu VG.  En mér er sjáfu sér engin vorkunn, Steingrími J Sigfússyni tekst það ekki heldur.

En aftur að framhaldsskólunum.  Ungt fólk er það upplýst, að það getur sjálft ákveðið hvar það vill leita hófanna í menntun og ekki síst í atvinnutækifærum.  Lítið er um fína drætti á meðan VG sitja við stjórnvölinn.  Fólk flykkist úr landi í atvinnuleit.  Loforð um verklegar framkvæmsir sviknar og nú síðast "gleymdist" að taka fyrir og lagfæra lagaumgjörð um leit að olíu á Drekasvæðinu.  Mér segir sá hugur að það þyki rumpuliðinu í VG ekki verra.

Greinilegt er að VG er einungis að leggja í til heimabrúks.  Þetta er sama gamla sullið.  Gamalt vín á nýjum belgjum.
mbl.is Herkynningar verði bannaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtilegur rugludallur Árni.

Hverjir er samþykkir heræfingum á Íslandi ár eftir ár??  Eru það ekki VG?

Af hverju stoppa þeir þessar æfingar ef þeir meina eitthvað með því sem þeir segja og/eða samþykkja?

Er VG ekki í ríksstjórn?  Er ég búinn að missa af einhverju?

Hvað með hjáróma píp VG um að segja sig úr NATO?

Hverslags vinnubrögð eru þetta í Árna?  Eru þessar yfirlýsingar einungis til heimabrúks, til þess að reyna að sýnast eitthvað? 

Það er eitt að sýna tennurnar þegar það á við og annað að sjá menn eins og Árna Þór Sigurðsson, að verða uppvísir að sýna alsberan góminn trekk í trekk í pólitískum tilgang.
mbl.is Óviðeigandi að leita að „fallbyssufóðri“ hér á landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gaman að sjá loks þingmenn vinna....

...með meirihluta þjóðarinnar.  Það gekk þó ekki hljóðalaust fyrir sig.  Nokkrir löðrungar og þá skildi ríkisstjórn Ísands að lokum að það er þjóðin sem hefur síðasta orðið í veigamiklum málum.  Ekki nokkrir veruleikafirrtir ráðherrar í ríkisstjórn, sem er með minnsta mögulega meirihluta að bak sér.
mbl.is Órofa samstaða um málsvörn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og þetta gekk glatt fyrir sig....

....þrátt fyrir aðvaranir Steingríms fyrir nokkrum mánuðum, um að allt færi hér til fjandans er við samþykktum ekki Icesave.  Var þá eftir allt, ekkert að marka varnaðarorð ráðherrans?
mbl.is Skuldabréfaútgáfa vekur athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Global warming !!??

Oft hef ég Fagradalinn farið á þessum tíma árs, en rekur ekki í minni slíkt veður.  Oft hefur verið kalt og slagviðris rigning, - en þetta er "too much"....oj bara.
mbl.is Vetrarfærð á Fagradal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Austfirðingar eiga þar um 22%.....

....þó þeir séu aðeins 4% þjóðarinnar.  Er í ljósi þessa, ekki rétt að bróðurparturinn af þessum 22% af útflutningstekjum, renni til Austurlands? 

Hvar eru þeir núna sem eru að tala um að jafna atkvæðisréttinn?

Er kosningarétturinn rétthærri en annar réttur landsmanna?

Á bara að jafna þegar "réttur" Reykvíkinga er með jafnréttishalla?

Verður ekki að skoða þessi mál í víðara samhengi?


mbl.is Afgangur af vöruskiptum í maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband