Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2011
16.2.2011 | 13:23
Flumbrast áfram.
Framsóknarmenn gætu þó sýnt íslenskunni viðeigandi virðingu.
"....að einn þingmaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs er á leið erlendis á vegum alþingis...."
Fólk fer utan, einnig þingmaður VG, og þegar þangað er komið er hann staddur erlendis á vegum Alþingis.
"Út vil ek" sagði Snorri Sturluson og vildi fara utan, ekki "Erlendis vil ek".
Gagnrýna forseta Alþingis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þjóðin tók sjálfstæða ákvörðun, þökk sé forseta vorum. Er ekki rétt að endurtaka leikinn og sjá hvað sparast á því? Það er dyggð að spara.
Því verður aldrei svarað, hvort íslendingum ber nokkur skylda til að ábyrgjast innustæður einkafyrirtækja, nema með því að fara með málið í dóm. Það er eina leiðin til að fá botn í þetta mál.
Mikill vafi leikur á því að ríkisstjórnin hafi umboð til þessara samninga. Ríkisstjórnin byggir málflutning sinn á mjög veikri lagalegri stoð og ekki verður heldur séð að ríkisstjórnin hafi til þess umboði frá þjóð sinni.
Hættum að láta Breta og Hollendinga hræða okkur til hlýðni. Við erum sjálfstæð þjóð. Tími nýlenduyfiráða er liðinn. Sýnum það í verki. Enga samninga!!
Skömm Bjarna Benediktssonar og fylgjenda hans verður mikil, ef þetta óláns mál rennur í gegn um þingsali með stuðningi Sjálfstæðisflokksins.
Styður ekki þjóðaratkvæði um Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.2.2011 | 20:40
Þökk sé stjórnarskránni, að höfum við forseta....
Það sem er merkilegast við þetta, er að lögfróðir menn skulu ekki sjá ruglið í þessu. Bretar og Hollendingar væru fyrir löngu búnir að fara dómstólaleiðina, ef þeir vissu ekki eins og er. Sú leið er mjög torsótt, svo ekki sé meira sagt.
Í venjulegu siðuðu samfélagi er dómstólaleiðin stundum eina færa leiðin til að leysa úr ágreiningi. Það breytir hins vegar ekki því, að allt að þeim tímapunkti þar til dómur fellur, - er sáttaleiðin fær.
Þetta er sú leið sem ég hef fyrir löngu ákveðið með sjálfum mér að sé eina leiðin út úr þessu máli. Látum Breta og Hollendinga leggja þetta fyrir dóm. Þá fáum við rökin og þær málsgreinar sem vitnað er í, þeirra máli til stuðnings. Þá, og ekki fyrr en þá eigum við að hugsa okkar gang. Það segir mér hugur að Bretar og Hollendingar láti sér aldrei detta það í hug að fara þá leið, til þess er lagastoðin of veik.
Mín skoðun er samt sem áður sú, að það á að dæma í málinu. Það hefur forræðisgildi og það þarf að fá niðurstöðu í þetta mál, - klippt og skorið.
Icesave afgreitt af fjárlaganefnd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2011 | 17:05
Ekki spurning......
Vill hún henda birgðum á axlir barna og barnabarna?
Viljum við gera gegn lögum um innustæðutryggingu?
Viljum við gangast í ábyrgð við fjárglæframenn, sem virðast hafa rænt banka okkar innanfrá?
Mitt svar er:
NEI!!!! Ég samþykki aldrei ICESAVE-KLAFANN hvorki á mig né fjölskyldu mína.
Tillaga um þjóðaratkvæði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2011 | 16:58
Þar af alltaf ein á Egilsstaðaflugvelli.
Rökin:
- Gjöful mið eru út af Austurlandi. Fiskiskipaflotinn því oft stór. Langt að bíða eftir björgun úr Reykjavík.
- Siglingaleið stórra skipa út af Austurlandi, m.a. Norræna.
- Yfirflug stórra flugvéla, heimsálfa á minni er mjög oft yfir Austurlandi.
- Með því að hafa eina þyrlu í Reykjavík og aðra á Egilsstöðum, næst besta nýting vélakostsins.
Ávallt verði tvær þyrlur til staðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.2.2011 | 13:13
Var Svandís Svavarsdóttir á móti ESB umsókn?
Tilefni fyrirspurnar minnar eru orð hennar, þar sem hennar túlkun á lögum sé sú, að það sem er ekki leyft skv. lögu sé bannað.
Hvar í landslögum er stjórnvöldum veitt heimild til að:
a) Sækja um aðild að ESB?
b) Þiggja pening frá ESB til að auðvelda umsókn?
Því hítur að vera rökrétt að varpa fram þessari fyrirspurn:
Var Svandís Svavarsdóttir á móti ESB umsókn?
Svandís dró jafnframt í efa að einhver annar, en Flóahreppur mætti greiða fyrir skipulagsvinnu hreppsins.
Því hlítur maður að einnig velta öðru fyrir sér?
Er í þessu samhengi rétt að ESB veiti styrk til að auðvelda inngöngu í sambandið. Var það í þökk Svandísar Svavarsdóttur að þeim styrki var veitt viðtöku?
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.2.2011 | 22:27
Þar í landi er herinn fær um að koma óhæfu fóli frá.
Samt hvarflar að manni þeir hafa þó von um að allt lagist, vegna þess að þeir hafa her sem getur tekið í taumana og komið frá óhæfum stjórnendum, sem hafa gert langt upp á bak.
Vonandi rennur aldrei upp sá dagur, að maður óski þess að hafa þannig her hér.
Mubarak segir ekki af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2011 | 17:08
Er ekki rétt af manni........
Vel til fundið að hafa þessa sýningu í Sláturhúsinu, þar sem flest hefur verið skotið til bana, að vísu með til þess að gera, - einföldu vopnasafni.
Byssur til sýnis í sláturhúsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2011 | 17:01
Umhverfisráðherra fær á snúðinn.
Væntanlega er með þessu, einum steininum rutt úr vegi í atvinnuuppbyggingu á landinu. Næsti steinninn er ríkisstjórnin sjálf.
Ákvörðun ráðherra ógilt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.2.2011 | 00:42
Hvað segir Óðinn Jónsson fréttastjóri núna??
Ekki var hægt að skilja snúðshátt fréttastjórans á annan hátt, en að mál- og skoðanafrelsi á líðandi stund, væru einskorðaðar við fréttastofur og þar kæmi engum við efnistök né fréttamat.
Fróðlegt verður að fylgjast með viðbrögðunum við þessari ályktun.
Sjá það sem áður var fjallað um þetta: http://pelli.blog.is/blog/pelli/entry/1136278/
Eyþing bókar vegna fréttamanns | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)