Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009
3.6.2009 | 09:26
Gæti loftsteinn hafa grandað vélinni?
Flugslys eru fátíð, sem betur fer, en alltaf jafn dapurleg. Áhætta fylgir öllu lífi og framfarir mannanna hafa tekið sinn toll í mannslífum. Þegar flugóhapp og flugslys verða, er það gjarnan vegna margra samverkandi þátta, sem leiða að lokum til þess að flugvél ferst. Oftast gefst þó tími til að senda út neyðarkall. Við erfiðar aðstæður hefur áhöfnin þó öðrum hnöppum að hneppa og getur því misfarist að senda boð um neyð, þegar verið er að berjast fyrir lífi sínu og farþega.
Kenning hefur komið fram um að elding hafi lostið vélina og hún faris af þeim sökum. Sjaldgæft er hins vegar að elding valdi það miklum skaða á stórum flugvélum, að þær fari niður.
Er hugsanlegt að loftsteinn hafi grandað vélinni? Hluturinn þarf ekki að vera stór, sem kemur á hljóðhraða og rekst á flugvél. Hann getur valdið óbætanlegum skaða og hæglega grandað flugvél. Ef þessi hlutur lenti á stjórnklefa þyrfti ekki að spyrja að leikslokum. Engin neyðarboð bærust frá áhöfninni.
Brakið án efa úr týndu vélinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.6.2009 | 09:10
Helstu afrek ríkisstjórnarinnar
Yfirlýstar sparnaðarleiðir ríkisstjórnarinnar eru m.a. eftirfarandi:
1. Markmið: Að spara í ríkisfjármálum
Leiðin að markmiðinu: Fjölga ráðherrum
2. Markmið: Halda niðri kostnaði
Leiðin að markmiðinu: Halda ríkisstjórnarfund á Akureyri
3. Markmið: Engin ríkisforstjóri verði með hærri laun en forsætisráðherra
Leiðin að markmiðinu: Hækka laun forsætisráðherra??
4. Markmið: Efla ferðaþjónustuna og hvetja til ferðalaga innanlands
Leiðin að markmiðinu: Hækka bensín og skatta
Þetta er náttúrulega bara tær snilld!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)