Flokkur sem þorir.

Nú hamast andstæðingar Framsóknarflokksins að blogga sem óðir séu og lýsa út í hvert skot til að finna eitthvað, bara eitthvað til að næra samsæringakenningarfíkn sínar um eitthvað slæmt vegna kosningar Sigmundar.

Grasrótin tók hinsvegar völdin af gæðingunum í Framsóknarflokknum, sem héldu að þeir hefðu tökin á þeim bæ.  Það er ekki furða þó flokksgæðingar annara flokka fái örlítinn hroll niður hryggjasúluna, því nú er búið að gefa tóninn.  Handónýtir flokkseigendur sjá nú fram á erfiða tíð við að svara grasrótinni. 

Spurningin til frambjóðenda allra flokka verður:

Hvernig gat þetta farið svona og hvað gerðir þú til að koma í veg fyrir það?
mbl.is Flokknum bjargað, segir Siv
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ROFL !

Eins gott þetta sé bara á pretni !

Þú hlýtur að eldroðna af svona bull bloggi !

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 18:54

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Ég sé að Framsókn er að blása í þig nýju lífi Pelli.

Magnús Sigurðsson, 19.1.2009 kl. 22:56

3 identicon

Sammála Pelli  

Birgir þú hlýtur að eldroðna af svona bölvuðu rugli eins og þú lætur frá þér, eða er þér illt í maganum???

(IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 01:19

4 Smámynd: Benedikt V. Warén

Satt er það Birgir, - auðvita er ég rjóður. 

Er von að mér hlaupi kapp í kinn við svona jákvæð vinnubrögð hins almenna flokksmanns.  Nú er ég loksins búinn að taka Framsóknarflokkinn í sátt aftur, - eftir margra ára "kalt stríð".

Þetta á bara eftir að vinda upp á sig, einnig í öðrum flokkum.  Þetta handónýta lið í öllum flokkum á að víkja fyrir ferskum og dulglegum einstaklingum, sem eru til í að taka til hendinni og ganga til verka og leysa þá hnúta sem sukkliðið er búið að hnýta.

Benedikt V. Warén, 20.1.2009 kl. 13:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband