Frábærar fréttir í íhaldskreppunni.

Þeim fer sem betur fer fækkandi þursunum sem sjá ekki nauðsyn þess að hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni. 

Nú er bara að ríkið geri makaskiptasamning vegna bankalóða og flugvallarsvæðisins, svo þetta mál sé þar með út af borðinu í eitt skipti fyrir öll.
mbl.is 64% Reykvíkinga vilja flug í Vatnsmýri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Við trúum engu sme Flugstoðuir koma nálægt.

Ekki kvint.

Búpið að kjósa um þetta, niðurstaðan liggur fyrir, Vallarómyndin fer fyrr en menn hyggja.

Höfum ekki efni á að reka tvo millilandavelli á einum skaga.

Vantar meira pláss undir sprotafyrirtæki og Háskólatengda starfsemi.

BRETARUSLIÐ BURT.

Ytum þessu út í Skerjafjörð.

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 10.11.2008 kl. 14:13

2 Smámynd: Benedikt V. Warén

Bjarni. 

Flugvöllurinn er fyrst og fremst innanlandsflugvöllur og um hann fara um 500.000 manns í innanlansdflugi.  

Það er einnig athyglivert þegar íhaldskempur eins og þú eru að verja kexruglaða kosningu sem R-listinn stóð fyrir og fylgdi síðan ekki þeim leikreglum sem settar voru fyrir kosninguna, hvað varðaði þáttöku né afgerandi niðurstöðu. 

Benedikt V. Warén, 10.11.2008 kl. 14:27

3 Smámynd: Ólafur Guðmundsson

Rúmlega 1.500 manns á dag. Það getur varla verið mikill fjöldi.

Ólafur Guðmundsson, 10.11.2008 kl. 14:30

4 Smámynd: Johnny Bravo

Fólk sem er með póstnúmer yfir 108 á ekki heima í Reykjavík hehe

Johnny Bravo, 10.11.2008 kl. 14:30

5 Smámynd: Benedikt V. Warén

Þessir 1500 manns á dag eiga líka sinn rétt, sér í lagi þegar öllum helstu stofnunum Íslands er komið fyrir í næsta nágrenni flugvallarins, sem við tökum þátt í að byggja og reka. 

Við borgum fyrir þessa þjónustu, - hefur þú hugleitt það Ólafur?

Skattar renna hins vegar til Reykjavíkur, þó tekjurnar verði til vegna þeirra sem búa á landsbyggðinni.

Benedikt V. Warén, 10.11.2008 kl. 14:37

6 Smámynd: Ólafur Guðmundsson

Það er alveg hárrétt hjá þér. Þessir 1.500 manns eiga sinn rétt. En er þetta ekki full dýru verði keypt að taka frá gífurlega stórt landssvæði í miðborg höfuðborgarinnar til þess að þessir 1.500 manns geti nánast flogið inn í allar helstu stofnanir Íslands á meðan að við Reykvíkingar þurfum að ferðast langar leiðir til þess að komast í þessar sömu stofnanir. Ég tel að þessir 10-30.000 íbúar, sem gætu búið þarna, hafi líka sinn rétt til að sækja þessar sömu stofnanir í staðinn fyrir að ferðast alla leið frá t.d. Hólmsheiði. Ferðatíminn er miklu lengri frá Hólmsheiði og í miðbæinn heldur en úr Vatnsmýrinni og í miðbæinn. Ég gæti trúað að tíminn sem (aðeins) 10.000 manns þurfa að eyða vegi vel upp á móti þess tíma sem sparast við að 1.500 manns lendi í miðborginni. Fyrir utan hvað þetta myndi stytta leiðir allra annara höfuðborgarbúa.

Ólafur Guðmundsson, 10.11.2008 kl. 15:09

7 identicon

Ef þetta er og mikið pláss fyrir 1.500 mans á dag þurfum við þá ekki bara að endurskoða allan miðbæinn?

T.d. er grjótaþorpið verulega vannýtt hvað ætli margi nýti það húsnæði sem þar er? þar væri hægt að setja háhýsi í svipaðri hæð og gamla moggahúsið sem er þar hjá og ná mikklu betri nýtingu.

Ég bý í reykjavík (allaveganna samkvæmt póstnúmeri (112) þótt sumir telji ekkert utan 105 með)en samt vill ég halda vellinnum.

ingi (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 15:21

8 Smámynd: Ólafur Guðmundsson

Ingi, þú getur nú varla borið nýtinguna á landsvæðinu þar sem grjótaþorpið er saman við landsvæðið sem fer undir flugvöll.

Ólafur Guðmundsson, 10.11.2008 kl. 15:26

9 Smámynd: Benedikt V. Warén

Ólafur. 

Hverjir búa á Hólmsheiðinni??  Það eru rúmlega 100.000 manns sem búa úti á landi og er að sækja heilbrigðisþjónustuna í miðbæ Reykjavíkur.  Það eru fleiri en þessir 10-30.000 sem geta búið á Vatnsmýrarsvæðinu. 

Þú hefur alla mína samúð að þurfa að bæta tíu mínútum í þín ferðalög, en gleymdu því ekki, að við hin erum að tala um klukkustundir í sömu erindagjörðum og það kosta líka sitt að ferðast, -fyrir utan vinnutapið.

Fyrirhugað sjúkrahús við Hringbraut er velkomið austur í Egilsstaði.  Við höfum nægt landrými fyrir það og góðan flugvöll við hendina.  Þá getur þú og þín líkar lagt niður flugvöllinn í Vatnsmýrinni fyrir mér og notið þeirra forréttinda að aka um Reykjanesið endilangt í sjúkrabíl til að komast í flug og á sjúkrahúsið á Egilsstöðum.  

Það verður hugsað vel um þig hér.

Benedikt V. Warén, 10.11.2008 kl. 15:30

10 Smámynd: Benedikt V. Warén

Ólafur.

Gleymdi að nefna það, þarf að byggja yfir 10-30.000 íbúa, þegar um 2000 íbúðir standa auðar í Reykjavík?? 

Hvaðan á þetta fólk að koma??

Benedikt V. Warén, 10.11.2008 kl. 15:42

11 identicon

Hann getur ekki svarað því, eðlilega,  því það er ekki hægt.

það er líka nóg húsnæði fyrir næstu 10-20 árin í henni Reykjavík, hvort heldur það er íðnaðar, verslunnar, skrifstofu  og eða íbúðarhúsnæði, ef horft er á allt stór Reykjavíkursvæðið. Nú svo er búið að skila inn lóðum í 20 ef ekki  100 ðavís svo ef einhver telur þörf á að bæta við byggingum ætti það ekki að vera vandamál.

(IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 16:33

12 identicon

Það er svo margt sem þarf að færa ef færa á flugvöllinn, öll sú opinbera þjónusta sem hvergi er annarstaðar en í Reykjavík.

Ef völlurinn verður lagður af, og meiningin að flytja starfsemina til Keflavíkur, þá þýðir það ca 15 min lengra flug, fram og til baka, til allra staða á íslandi, það kostar ofboðslega peninga, hvað kostar svona vél á klukkutíman.... 300þús ? meira ? alls ekki minna.  Svo ekki sé nú minnst á mengun, og stóraukna oliu notkun, bæði á vélarna og bílana við að verðast þarna suðureftir.... varla þjóðhagslega haghvæmt.

Ætlar þá þessi þarna Dagur að borga þann mun ? 

Reykjavík (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 18:15

13 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Við sáum nú í fréttum um daginn hver er hæsti skattgreiðandinn í Reykjavík; Ríkissjóður.

Haraldur Bjarnason, 10.11.2008 kl. 18:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband