Votir draumar um sæstreng

Að selja orku úr landi er ein arfavitlausasta hugmynd sem upp hefur komið lengi og ég er mjög dapur yfir þætti forseta vors í þessu sambandi.  Þeir sem vilja selja, sjá gróða í hverju horni, en þegar betur að gáð, hefur þetta sömu áhrifin og að pissa í skóinn sinn, - tímabundin áhrif.

"Gróðinn" sem menn sjá, er vegna þess að lítið sem ekkert á að greiða landeigendum fyrir vatnsréttindin, heldur á "ágóðinn" að renna beint í hítina fyrir sunnan, eins og allar "góðu " hugmyndirnar sem koma frá EXEL-tæknunum.  Summan sem fæst fyrir orkuna, rennur beint til Landsvirkjunar og sama og ekkert er greitt af því fyrirtæki í fasteignagjöld fyrir stíflumannvirki, sem með réttu ætti að renna til sveitarfélaga.

Orkan okkar er hrein og verðmæt afurð, og vilji erlendir menn nýta hana, þá "versgú" komið og nýtið hana hér.  Skapið vinnu á Íslandi.  Sé eins mikil orka til í "kerfinu" eins og menn vilja vera láta, getum við nýtt hana í matvælaframleiðslu, ylrækt og þess háttar.

Orkan okkar er hrein og verðmæt afurð, því á ekki að eyða henni í tap í köplum milli landa.
mbl.is Nokkur ár í sæstrengsákvörðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ásahreppur sem á landið undir virkjunum á veitusvæði Þjórsár er ríkasta sveitafélagið á landinu.

sing (IP-tala skráð) 5.12.2013 kl. 11:56

2 Smámynd: Benedikt V. Warén

Betur að Jökuldælingar hefðu sömu söguna að segja um Kárahnjúkavirkjun og Fljótsdalshðérað með fasteignagjöldin, þeirra sem leggja til orkuna, fórna mesta landinu og þar sem stærsta mannvirkið er. 

Fasteignagjöldin skila sér hins vegar vel til lítils samfélags, þar sem túrbínurnar eru.  En hvað eru túrbínur án vatns?

Þarna vantar einhverja tengingu milli hagsmuna og almennrar skinsemi.

Benedikt V. Warén, 5.12.2013 kl. 14:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband