...sem þýðir einfaldlega það.....

....að Ísland getur á einni nóttu, gengið inn í ESB með því að afsala sér öllum réttindum og skriðið upp í hjá Dönum aftur.

Við lýsum því bara yfir að allt bröltið í Jóni Sigurðssyni, þið munið ruglaða kallinn frá Dýrafirði, eða þarna frá vestfjöðum einhversstaðar og var á framfæri Dana í mörg ár, hafi verið í tómu rugli og ekkert að marka hann.

Við vinnum málið á eftirfarandi hátt:

1. Sendum Össur á fund Þórhildar Margrétar danadrottningar
2. Hann bendi drottningu á að öll sjálfstæðisbarátta Íslendinga sé einn alsherjar misskilningur
3. Hann komi því á framfæri, að við viljum fá sömu stöðu og Færeyingar, - hjáleiga í Danaveldi
4. Danskan verði ríkismálið
5. Þjóðþingið verði í Kaupmannahöfn, enda nær Brussel
6. Tökum upp Dönsku krónuna, sem tengd er Evru
7. Sjoppan við austurvöll verður útibú og afgreiði styrki og bætur til íslendinga
8. Kjósum svo þrjá fulltrúa á danska þingið

Best af öllu er þó, að með þessu losnum við núverandi valdhafa  Devil

Þá getum við haldið blessuð jólin glöð í bragði, - eða hvað? 

 


mbl.is Skotland yrði utan Evrópusambandsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Almenningur á Íslandi hafði miklu meiri réttindi þegar landið var með sameiginlegan konung með Danmörku. Hafði öll réttindi í Danmörku. það sem gerðist síðan þegar því konungssambandinu var rift í vitleysisgangi var að elítan hérna, eðalsjallar og eðalframarar, tryggði völd sín ínnanlands og gat farið sínu fram við að berja á almenningi.

það vr stór skref afturábak fyrir almenning að slíta konungssambandi við Danmörku og mestu mistök íslandssögunnar.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 10.12.2012 kl. 18:08

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Ekki veit ég hvaða sögubækur þú hefur lesið Ómar, en samkvæmt þeim sem kenndar voru í barnaskóla, fyrir nokkrum áratugum síðan, þá var lífið hér á Íslandi ekki beinlínis neinn dans á rósum, undir valdi Dana.

Hafi réttur okkar verið sá sami og innfædra Dana, virðist sem illa eða ekkert hafi gengið að uppfylla þann rétt okkar. Auðvitað var þó kirkju- og höfðingjaveldið í góðum málum. Þar skorti ekki réttindin og forréttindin. En hinn almenni Íslendingur mátti sætta sig við ormað mjél.

Gunnar Heiðarsson, 10.12.2012 kl. 18:19

3 Smámynd: Benedikt V. Warén

Ómar Bjarki.  Ert þú hér með að upplýsa okkur um það, að þú viljir íslendingum að ganga Dönum aftur á hönd?

Benedikt V. Warén, 10.12.2012 kl. 18:26

4 Smámynd: Benedikt V. Warén

Gunnar.  Ómar Bjarki á ef til vill lóð vísa á Jótsku heiðunum.   

Benedikt V. Warén, 10.12.2012 kl. 18:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband