Uppsigaður og taugaveiklaður sértrúarsöfnuður.

Það er með sérstaklegri gleði sem maður fylgist með tryllingslegum hrunadansi Samfylkingarinnar þessa dagana.  Ástæðan er að framsóknarflokkurinn er að kroppa í líkþorn prelátanna í söfnuðinum.

Auðvita er þetta hárrétt hjá Sigmundi, þetta er ekkert annað en samsafn einstaklinga sem halda að eilíft líf fylgi inngöngu í söfnuð ESB.  Það er að sjálfsögðu ekkert annað en ofsatrú og meðlimirnir, sem mynda þannig hóp, - er sértrúarsöfnuður.

Það er orðið morgunljóst að þessi söfnuður er tilbúinn að ganga fyrir björg í sannfæringu sinni um gósentíð á hinum óendanlegu lendum ESB-himnaríkisins.
mbl.is „Sértrúarsöfnuður en ekki stjórnmálaflokkur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband