...og Byggðastofnun einnig...

...vegna þess að þetta eru óþarfar stofnanir ef menn hafa rænu á að taka upp nýrri og skilvirkari vinnubrögð.  Það þarf að stokka upp á nýtt í grautarpotti samskipta ríkis og bæja í skiptingu fjarmuna þegnanna.  Þar hefur lengi hallað verulega á, - sveitarfélögum í óhag. 

Sitjandi ríkistjórnir hafa ávallt búið að því að eiga ráð til að skattleggja borgara landsins, ef illa árar, - það heita landslög.  Þegar sveitarfélögin lenda í fjárhagserfiðleikum, þá tala þingmenn og ráðherrar um óráðssíu.

Þetta þarf að laga.  Sveitarfélögin eiga að fá að njóta stærri hluta þeirra tekna og verðmæta, sem verða til í heimabyggð.

Alþingi á að sjá um löggjafavaldið og framkvæmdavaldið á í ríkara mæli að vera hjá fólkinu, þ.e. hjá sveitarfélögunum.

Til þess að gæta jafnréttis milli ríkis og sveitarfélaga, verður að bylta skattkerfinu og gjörbreyta.

Öll skattinnheimta verði í höndum bæjar- og sveitarfélaga, sem síðan verði gert að greiða í einn sjóð skv. höfðatölu, öll sömu krónutölu miðað við hvern einstakling óháð aldri og stöðu. 
mbl.is Vilja leggja niður Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta þarf að laga.  Sveitarfélögin eiga að fá að njóta stærri hluta þeirra tekna og verðmæta, sem verða til í heimabyggð.

Þetta er nákvæmlega málið.  Landsbyggðin heldur uppi höfuðborginni en ekki öfugt eins og 101 elítan álítur. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.11.2011 kl. 11:13

2 Smámynd: Benedikt V. Warén

Sæl Ásthildur. 

Búinn að viðra þetta fyrirkomulag oft áður.  Sé ekki að nokkur annar sé sammála því. 

Takk fyrir innlitið

Benedikt V. Warén, 15.11.2011 kl. 14:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband